Við búum í útlöndum

Leikaraparið Guðmundur Felixson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir eru flutt til Prag. Þetta er í fyrsta skiptið á sinni fullorðinsævi sem þau búa í útlöndum. Þetta hlaðvarp er þeirra saga. Og svo fær Arnaldur Snær, 5 ára, auðvitað líka að vera með!

Episodes

Oct 31, 2025

1hr 5 min

Okkar allra besta vinkona, Steiney Skúladóttir, kom í heimsókn til Prag og að sjálfsögðu fengum við hana sem gest í poddið! Við ræðum skrítnu leiksýningarnar sem við höfum dregið hana á, hryllingshúsið sem stelpurnar fóru í, Hrekkjavökuna sem Blær er komin með ógeð á og svo blind rönkum við Prag. Orð dagsins er líka sérstaklega fyndið þessa vikuna! 
Fylgið okkur á instagram: @utlondpodcast

Oct 19, 2025

47 min

Í þætti dagsins tölum við um hvað við erum allt of mikið í símanum, aðallega þegar við erum að svæfa. Hrekkjavakan nálgast og Blær er að sjálfsögðu búin að skreyta allstaðar. Við förum yfir hræðileg örlög dúfunnar (sem eru í alvöru mjög sorgleg). Gummi power rankar gælunöfnin sem hann hefur yfir Blævi og Blær gerði sig að fífli við að reyna að næla sér í play-dates fyrir Arnald. Orð dagsins er að sjálfsögðu á sínum stað.
Fylgið okkur á instagram! @utlondpodcast 

Oct 9, 2025

50 min

WE’RE BACK BABY!
Rosa löng pása en við erum komin aftur. Í þætti dagsins tölum við aðeins um ferðalag sem við fórum í og hvað það er klikkað að hér vaxi bara ávextir á trjánum! Það er fallegt og smá… hræðilegt…
Gummi afhjúpar að hann er í raun Nutella fíkill. Og eru Tékkar eins og Hobbitar? Eða gamlir sjóarar?
Fylgið okkur á Instagram! @utlondpodcast 

Feb 10, 2025

51 min

Síðasti þátturinn áður en Blær fór til Íslands! Við ræðum óskrifaðar reglur í nuddi og tölum um allskonar ömurleg störf sem við höfum unnið. Blær tók þátt í ólöglegri starfsemi á veitingastað og Gummi var niðurlægður af börnum og túristum. 
Við erum farin í smá pásu á meðan Blær er kvikmyndastjarna á Íslandi. Heyrumst aftur í mars! 
Þátturinn er í boði Alfreð! 
Fylgið okkur á Instagram: @utlondpodcast
---
Gervigreindin hafði þetta að segja:
Hæ, kæru hlustendur!
Í þessum þætti förum við á vit ævintýra því Blær og Gummi hrífa okkur með í minisjónævintýri og fræða okkur um óskrifuðu reglurnar í nuddi. Við fáum líka innsýn í leiklistarheiminum þar sem Blær er að leika stóra hlutverk og býður okkur að hlýða á, þegar lífið verður svolítið eins og spunaspil.
Eh, við gleymum ekki gríni og leiklistartöfrum! Þar á meðal sögur af Gummanum þegar hann var lukkuhlutur og hvernig það var eiginlega að vinna sem lifandi túristagagn í miðborg Reykjavíkur. Þetta er þverskurður af því hversu ólíkur dagurinn getur verið og hvernig við getum öll verið túristar í eigið lífi!

Jan 31, 2025

44 min

ATHUGIÐ! Þessi þáttur er tekinn upp í fortíðinni því Blær er í raun komin til Íslands. En við höfum af nógu að taka. Leiklistarpælingar á borð við: Eru bara til nokkrar tegundir af leikurum? Gummi segir okkur frá einhverjum skrítnustu leiksýningum sem hann hefur séð hérna úti. Hvers söknum við mest frá Íslandi? Hvenær er eitthvað list og eitthvað bull? Afhverju eru tónlistarmenn alltaf að stoppa mann á götum úti og láta mann hlusta á sig? og auðvitað orð dagsins.
Þátturinn er í boði Alfreð. 
Fylgið okkur á Instagram! @utlondpodcast
---
Og eins og hefð er oðin, þá kemur hér þáttalýsingin sem gervigreindin bjó til: 
Í þessum þætti tölum við um skemmtilega hluti eins og hversu góðir Tjekkar eru að spjalla kurteislega og hvernig það getur verið furðu gaman að kynnast ókunnugu fólki. Við förum í saumana á skrýtnum mat í Prag og komumst að því hvaða mat sakna Íslendingar mest í útlöndum.
Nýji liðurinn okkar, 'Hvað er bull og hvað er alvöru?' er kominn aftur og við skoðum hvort leiklistanámið í Prag sé eins skrýtið og sumir vilja meina. Við ræðum einnig um hvað Íslendingar sakna helst þegar þeir búa í útlöndum, með þáttastjórnendurna Felikson og Hröðu Blæ Jóhansdóttur.
Endilega fylgist með fyrir meira um lífið í útlöndum í boði Alfreð og fáið innsýn í aðlögunina að nýjum venjum og hvernig við nýtum reynsluna frá ferðalögum okkar. Hlustið á persónulegar sögur, hlátur og ekki síst, hlýtt innsæi.

Jan 24, 2025

48 min

Blær ætlaði að vera flámælt þegar hún lék Sölku Völku, en hætti við þegar hún fattaði að Salka Valka er ekki gamanleikur. Er það kostur eða löstur að Tékkar séu alltaf á tillanum í saununni? Orð dagsins er á sínum stað og nýr liður um listræna kjaftæðið sem Gummi er að gera í skólanum! Við elskum ykkur og söknum ykkar!
Þátturinn er í boði Alfreð
Fylgið okkur á Instagram! @utlondpodcast
 
Gervigreindarlýsingin er sérstaklega hömlulaus þessa vikuna, með emojis og allur pakkinn: 
Hæ vinkona, í þessum þætti fer ég í gegnum það alveg persónulega hvað nektin í Prag snýst um - hvernig við höfum verið að venjast þessu allir saman og jafnvel náð að njóta þess smá! 🤭
Svo færðu að hlusta á nokkra reynslusögur um stefnumót og hvernig maður getur náð áttum í skólanum, þar sem ég sletti aðeins í smá svipmyndir um uppákomur og "fyrirbæri". 🎭
Við erum í svo gríðarlegu stuði í dag og það fer ekkert á milli mála að við elskum að tala um sýtrónusafa - hvernig hann getur komið manni til bjargar þegar maður er lasinn. 🍋
Síðan er það gamla góða stefnumóta fridge-með-Gumi og ég að mingla um lögndans og það hvernig við tökum við dramatík lífsins. 💃

Bótox í hárið

Jan 17, 2025

Jan 17, 2025

48 min

Blær fagnaði afmælinu sínu með því að splæsa í keratínmeðferð fyrir hárið sitt, þrátt fyrir ráðleggingar tékkneskra snyrtifræðinga um að fá sér frekar bótox í hárið. Arnaldur hefur ennþá jafnmikinn áhuga á fótbolta en því miður hættur að halda með Liverpool. Gummi kemur með nýjan kapítalískan lið sem allir hlustendur geta tekið þátt í! Og að sjálfsögðu kíkir sjálfur Alfreð í heimsókn ásamt konu sinni, Nínu, sem er með eitthvað óhreint mjöl í pokahorninu…
Þátturinn er í boði Alfreð! Tékkið á Alfreð og Giggó ef ykkur vantar vinnu eða starfsfólk.
Og fylgið okkur á Instagram: @utlondpodcast
 
Og svo fær auðvitað AI-þáttalýsingin að fylgja með:
Komiði sæl kæru hlustendur! Í þessum þætti fögnar blær afmælisdeginum sínum með stæl og Alfreð kemur í heimsókn. Við ræðum um kærkomna keratínmeðferð á hárinu og förum yfir undarlegan fund með leikskólakennaranum Arnaldar, sem er alltaf að sýna dansmyndbönd af sjálfum sér.
Arnoldur er fótboltahetja dagsins og við heyrum um nýjustu ævintýrin í boltanum. Hann talar um fótboltaáhugann sinn og hvernig hann sér alltaf fyrir sér skoruð mörk í hvaða deild sem er. Við vitum aldrei hvað gerist næst!
Við förum líka í loksins í heimsókn til Litlu búðarinnar þar sem við skoðum kostakaup og fáum okkur hlýja hitapoka frá Prag. Ekki missa af þessum skemmtilega þætti!

Hundrað bananar

Jan 10, 2025

Jan 10, 2025

46 min

Það snjóaði loksins í Prag! Og eins og allir góðir foreldrar þá keyptum við TVÆR snjóþotur handa Arnaldi. Blær vill meina að öll ljóðskáld séu klikkuð en Gummi vill meina að Blær sé klikkuð því hún keypti einu sinni hundrað banana. Kostur eða löstur og orð dagsins er að sjálfsögðu á sínum stað. Og Arnaldur segir okkur frábæra hugmynd um hvað hann myndi vilja endurskíra Tékkland. 
Þátturinn er í boði Alfreð. Tékkið á okkur á Instagram! @utlondpodcast
 
Og að sjálfsögðu fylgir gervigreindartextinn með: 
Í þessum þætti ræðum við allt milli himins og jarðar – frá ljóðskáldum og leikhúslist, yfir í kettir eða hundar? Við fögnuðum fyrsta snjónum í Prag með tveimur splunkunýjum sleðum og snúning í sleðabrekkunni!
Við vorum að leita að nýjum leiðum til að kynnast kennaranum hans Arnalds betur – sem hefur boðið okkur í tungumálaskipti. Hér talum við hversu mikilvægt það er að treysta stórum hundum í sporvögnum með smá grímu á múzzlum sínum.
Og, já það kom loksins snjór í Prag! Hvort sem þú ert aðdáandi kattar eða hunda þá skiptir engu máli, bæði þessi dýr eiga sérstakan stað í ágætum bæjarbúskapnum.

Jan 3, 2025

1hr 3 min

Nýtt ár, nýr þáttur! Við förum yfir áramótin í Prag, tölum um óskrifaðar reglur í sporvögnum og tölum um hættur þess að borða of mikið D-vítamín (kemur í ljós að það er alls ekki í lagi að borða bara endalaust af vítamínum) Blær frumsýnir splunkunýja Laxness-eftirhermu og orð dagsins er að sjálfsögðu á sínum stað. Njótið þáttarins :) 
Við búum í útlöndum er í boði Alfreð! 
Fylgið okkur á Instagram: @utlondpodcast
Og já. Gervigreindin hafði þetta að segja: 
Gleðilegt nýtt ár, kæri vinur! Í þessum skemmtilega þætti veltum við fyrir okkur hvernig áramótin í Prag fara fram og deilum nokkrum fyndnum sögum, enda erum við báðar nývaknaðar með alveg æðislegar nývöknaraddir. Við skoðum hvað gerist þegar maður missir flösku af hinni goðsagnakenndu bekarofku á borð steinstéttarinnar. Það eru ljúflegar minningar og stærri pælingar um lífið í útlandinu.
Ekki missa af bölva rígnum þegar fjölskyldustundin í rektinni breytist í óvæntan hláturkast út af hæðatræðuskrípó. Förum líka yfir allar þær óskrifuðu reglur sem rekið okkur í sporvögnum Prag, og sjáum hvernig við getum virðingarfullt boðið þessum fylltu farartækjum sæt okkar. Hér bjóðum við líka upp á góðan skammt af áramótaheitum og nýjum hefðum fyrir næsta ár.

Dec 27, 2024

1hr 4 min

Í þætti dagsins tala Gummi og Blær um veikindi sín um jólin, vítamín, lýsi og Starbucks. Við svörum fleiri spurningum hlustenda, eins og hvað er ólöglegt í Prag, brúðuleikhús og áfengi. Rigg Rigg er það gigg og orð dagsins eru auðvitað á sínum stað.
Þátturinn er í boði Alfreð.
Fylgið okkur á Instagram! @utlondpodcast
Oooog gervigreindarlýsingin fylgir að sjálfsögðu með: 
Sæl kæru hlustendur, gleðilega hátíð! Í dag ræðum við um allskonar skemmtileg málefni frá jólaskrauti og sósugerð til brúðuleikhúsa og bjórmenningar í Prag. Já, við kryddum dagskrána með lítilskemmtilegu spjalli um heilsuráð og lýsisneyslu, en gleymum því ekki að jólakvöldstundin er best þegar maður er í góðu skapi og hefur góðan bjór við hendina!
Vert er að nefna að við fórum í gegnum lífsskyfurnar okkar og skoðum hver okkar helstu áhugamál eru þessa dagana, hvort um sé að ræða perlusmíði eða ævintýraferðir um Prag. Já, lífið í útlöndum er fjölbreytt, og við reynum að nýta tíma okkar vel þrátt fyrir smá jólapása.
Fylgist með nýjum hugmyndum um hvernig má betur njóta jóla, en ekki ræða um stressið sem fylgir þeim. Við vonum að þið njótið þáttarins kæru vinir, því við erum hér til að skemmta ykkur og gefa gleði!

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125